11.06.2007 10:35:00 / Ragnheiðurs

Góðan dag

Ég ætla að skella hérna inn einni stuttri færslu þar sem ég get ekki sofið lengur og á ekki að mæta í vinnuna fyrr en 12.

Jæja. Mammma kom um helgina, Kom í heimsókn hingað á föstudagskvöldið. það vart rosa gaman að fá hana í heimsókn.:) Hitti hana svo í hálftíma á laugardaginn og svo ekkert meira. :(

Núna geri ég ekkert annað en að vinna, og hvíla mig. því eftir vinnu  er ég svo þreytt í löppunum og bakinu að mér finnst ég ekki geta gert neitt.

 en jæja. ég vil ekkert vera að hafa þetta lengra, vildi bara láta vita af mér.;)

-Ragnheiður Sjöfn 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 10:15:58 / Ragnheiðurs

ó sólemíó.!

Góðan daginn.

Ég vildi bara henda hérna inn nokkrum línum. þar sem  það er svo langt síðan  ég bloggaði síðast.

Jæja, ég er komin Norður aftur og byrjuð að vinna. Ég kann alveg ágætlega vel við mig þarna í Nettó.  

Á morgun er komið ár siðan við Svenni byrjuðum að vera saman. Mikið er þetta fljótt að líða. Ætlum að fara út að borða og gista svo upp í bústað.:) Það verður örugglega fínt.:)

Gúbbí fiskarnir okkar eru veikir, það lýsir sér þannig að bakteríur éta upp á þeim sporðinn. en ég er búin að vera að setja eitthvað grænt efni í búrið hjá þeim sem á að drepa þessar bakteríur. gúbbíkerlingin eignaðist 4 seyði í gær. :D ég náði samt bara að bjarga 2 seyðum frá hinum fiskunum sem gæddu sér á hinum tveimur seiðunum. Sem var ekki alveg nógu gott. 

Á meðan ég man. vil ég óska Láru til Hamingju með 17. ára afmælið í gær.;) Lára ég gleymdi því ekki.:P  

Jæja, held þetta sé bara fínt í bili. Ég reyni að koma með fréttir af mér hingað inn annað slagið. ;)

verið hress.;)

-RagnheiðurSjöfn 


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 14:02:20 / Ragnheiðurs

Home sweet home.:D

Góðan daginn, Langt síðan ég bloggaði síðast.

Jæja skólinn er búinn. ég náði öllum prófum og próflausum áföngum.  Ég er mjög stolt af því að hafa fengið 9 í Líffæra og lífeðlisfræði:D mjög gott.. Einnig 9 í Nát123(eðlis-og efnafræði.) og 8 í sálfræði.:D mjög gott.:D Mjög ánægð með þetta.

Jæja, ég kláraði síðasta prófið á föstudaginn og þá fór ég í flug suður. hitti mömmu og pabba og keyrði með þeim til Grundarfjarðar. Ég meira segja fékk að keyra frá Borgarnesi og í stykkishólm, ætluðum að heimsækja ömmu en svo var búið að loka þegar við komum þangað, og ég fékk líka að keyra til Grundarfjarðar. :D Fórum og heilsuðum upp á Aldísi því hún átti 10 ára afmæli stúlkan.:D vorum í Grundarfirði þangað til á sunnudaginn. Við fórum nokkrum sinnum til ömmu, hún er orðin mjög þreytt og máttfarin. Það er mjög erfitt að horfa upp á þetta. En jæja, ég kom heim á sunnudaginn og þá þurftum við að byrja á því að reyna að komast inn í húsið, þar sem Hanna var búin að læsa alla lykla óvart inni.hehh. greyið. en jæja pabbi fann sér veiðistöng og mamma skrúfjárn og byrjaði hún að skrúfa einn glugga úr. en pabbi setti krókinn á veiðistönginni inn um gat þar sem var einu sinni slanga frá þurkaranum og náði að krækja í gluggaopnarann og við komumst þannig inn.:D jeii. svo kom Hanna heim .. Mjög gaman að hitta hana. aftur. var búin að sakna hennar mikið.  jæja. svo ég er bara búin að vera heima.. Hitti Viktoríu og Láru og Guðbjörn og Ingu og svona.:D Gaman að hitta alla aftur:D

Ég fer aftur norður á fimmtudaginn. fer að vinna á föstudaginn.

En jæja. ég held þetta sé komið nóg í bili.

kveðja

-RagnheiðurSjöfn


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 14:40:51 / Ragnheiðurs

Góðan daginn

Arg ég þoli ekki þegar svona gerist, maður er búinn að blogga hálft blogg og svo hverfur það bara.!

jæja ég skal samt reyna aftur. hmm. ég hef svosem ekkert mikið að segja en ég er búin með 2 próf af 6. gengur bara ágætlega með þetta.  hmm Svo eru mamma, pabbi og Hanna að fara út til Noregs í fyrramálið. Alveg týbískt að ég komist ekki með út af skóla, þetta er í annað skipti sem ég kemst ekki með þeim út því ég þarf að vera í skólanum. arg!  fyrst þegar þau fóru með ömmu og afa og Bödda til Spánar í ágúst-september í fyrra, þá var amma ennþá frísk. og svo núna til Noregs í ferminguna hennar Lísu. En vá hvað mig langar samt heim þegar ég er búin í prófunum, sem er 18.maí. og vera í nokkra daga, en nei ég byrja að vinna 20.maí. væri alveg til í að breyta því. ..

Ég er ein heima núna, allir í vinnu. nema ég, var að klára að þurka af og laga til í herberginu. og Það  var enn einn fiskurinn að deyja, 7 fiskurinn á stuttum tíma. vona nú að hinir hafi það af að lifa aðeins lengur.  Nú eigum við bara, einn "hákarl" tvo albínóa balba, eina Fiðrildacíklíðu, fjóra tetra fiska , 3 gúbbífiska, einn glæran kattarfisks, og eina bíflugu. og einsa botnsugu.  Áttum tvo Plattý fiska, ál og glersugu og 3 aðra gúbbífiska. en þeir eru allir dánir.  ekki var það nú gott. erum búin að bæta við nokkrum síðan þessir fiskar dóu áttum ekki alla þessa fiska í einu.:D hehh

 en ég held þetta sé komið gott

saknaðar kveðjur heim að norðan

-Ragnheiður Sjöfn 


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 12:09:33 / Ragnheiðurs

3.maí.:P

jæja, langt síðan maður hefur komið með blogg. þetta gengur ekki.  síðasti skóladagurinn á morgun og svo prófin á mánudaginn.. Ég var að fá út úr síðasta kaflaprófinu í stærðfræði. fékk 3,5. já árangur. var með 3 og hálft dæmi rétt af 10. sleppti 3.dæmum. jæja, fékk líka í gær einkunina úr 30% prófinu í nát123. (efnafræði) og fékk 9,8. Þannig ég er búin að ná áfanganum með 8,585 eða bara 9:D pælið í þessu. ég sé var að drulla á mig í efnafræði í 8.bekk.:P hehe.og ég fékk einnig 9,8 úr síðasta heimaverkefninu í LOL103(líffæra og lífeðlisfræði. ) hmm.. ég veit ekki alveg hvað ég get sagt meira.  Hei ég er búin að fá vinnu sem kassadama í Nettó á Glerártorgi.:D sem er frábært. Hagkaup og Litla kaffistofan vildu einnig fá mig í vinnu en voru aðeins of sein að ná í mig.  en jæja svona er lífið bara.

Það er búið að vera æðislegt veður síðustu daga. 20 stiga  hiti og sól og læti.:D kom samt smá rigning í gær.:( en það lagaðist.:D  

hmm.. held þetta verði ekkert lengra í bili. þar sem mér dettur ekkert í hug að segja meira frá.

kveðjur að norðan

-RagnheiðurSjöfn 


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 16:51:50 / Ragnheiðurs

..

hæhæ, vildi bara láta vit af mér, ég er enn á lífi.:D  skólinn alveg að verða búin og ég verð vonadi komin með vinnu í enda morgunagsins.:Dlyklaborðið lætur eitthvað illa, 

heyrumst,

-Ragnheiður 


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 18:31:20 / Ragnheiðurs

Gleðilegt sumar

Gleðilegt sumar;)

Veturinn endaði ekki vel hjá mér né sumarið byrjaði vel. Ég nældi mér í smá kvef á þriðjudaginn, svo á miðvikudaginn(síðasta vetrardag) var ég bara komin með hita líka og mikið kvef og hósta eins og ég veit ekki hvað. Lá svo veik heima á sumardaginn fyrsta og borðaði varla neitt. Var að spá í að vera bara heima í dag og ekki fara í skólann en ég lét mig hafa það og fór í skólann, leið samt ekkert ofsalega vel. um leið og ég var búin í skólanum fór ég beint heim og lagði mig, vaknaði svo klukkan 5. Það var mjög gott að sofa. Svenni stakk mig af áðan til Húsavíkur, en hann kemur aftur í kvöld.;) sem betur fer. Það er svo leiðinlegt að vera veikur og einn. 

Loksins komin helgi, ég ætla bara að taka því rólega og láta mér batna.

jæja ég hef eitthvað minn að  segja núna. þannig ég hef þetta bara stutt í dag.

kveðjur

Ragnheiður Sjöfn. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 16:32:19 / Ragnheiðurs

Gaman Saman...;P

góðan daginn gott fólk.

jæja maður er alveg á síðustu metrunum í skólanum, allt að verða búið.  nú var söngkeppni framhaldskólanna haldin um síðustu helgi og auðvitað vann VMA:P Allir í skólanum voða hreyknir af sínum manni sem stóð sig eins og hetja. Þetta er í fyrsta skipti í sögu þessarar söngvakeppni sem VMA vinnur, en var í  sæti fyrir 2 árum. :) Glæsilegt. ! Það var rosalega mikið stuð á keppninn, allt öðruvísi en þegar maður horfir á þetta í sjónvarpinu. Ég hélt ég yrði heyrnalaus eftir þetta, það komu þessir svaka píkusrækir og skæru öskur úr skagamönnum og ég heyrði ekki neitt annað á meðan þau öskruðu, ML-ingar komu svo sterkt inn á eftir skagamönnum með öskurin, þar á eftir snæfellingar.. En það heyrðist samt langt um mest í VMA-ingum þegar Eyþór steig á svið og enn hærra þegar hann vann.! 

Ég hitti Láru og Guðbjörn á keppninni, æðislegt að hitta þau eftir allan þennan tíma. :D Ætlaði svo að hitta þau aftur á ballinu um kvöldið en þegar ég ætlaði að fara þangað var svo mikill troðningur og læti fyrir utan að við hættum við að fara inn og fórum bara heim að sofa. klukkan líka orðin 2 loksins þegar við komum heim. 

jæja ég ætti að fara að byrja að læra núna, það er svo miki ðsem ég á eftir að gera.fyrir vikulok. og vikan hálfnuð.

;) kveðjur

-RagnheiðurSjöfn 


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 20:47:13 / Ragnheiðurs

Páskarnir búnir og skólinn byrjaður aftur.

góðan daginn

það er orðið frekar langt síðan ég bloggaði síðast. fyrirgefið það.

Páskafríið var æðislegt, Ég byrjaði tveimur dögum fyrr í páskafríinu en átti að vera þar sem að pabbi var búinn að bjóða okkur á tónleika í reykjavík 28.mars. og auðvitað skelltum við okkur, Ég var alveg að fíla mig þarna, annað en sumir.:P hehe Hanna liggur við sofnaði bara. ! jæja svo daginn eftir var bara hangið í bænum og gert allt sem við þurftum að gera á meðan mamma var í skólanum. um kvöldið voru leigðar 2 dvd myndir og var ég sofnuð áður en sú fyrri náði að klárast, ( þá var klukkan hálf 10) svo skelltum við okkur til selfossar á föstudeginum og vorum við þar þarnað til við fórum upp í bústað. Vorum í bústaðnum alla helgina, það var alveg frábært að vera þarna. á sunnudeginum fórum við í fermingu hjá honum Geir Jóhanni frænda, það var rosa gaman að sjá alla ættingjana aftur. svo var farið inn í stykkishólm í heimsókn á spítalann til ömmu. Það er alltaf gaman að koma þangað í heimsókn, maður veit aldrei hverju maður á von á og stundum getur maður hlegið sig máttlausan eftir að hafa verið þar í heimsókn. :D gistum við svo í grundarfirði í 2 daga, og á meðan við vorum þar fórum við Svenni og Hanna hringinn í kringum snæfellsnesið.;) Jæja svo 3.apríl átti amma mín afmæli og fórum við til hennar áður en við lögðum af stað vestur og hún hélt bara að hún væri 80.ára gömul en ekki 64.ára.:D hehe.:P jæja, ferðin vestur var LÖNG þar sem á kafla gátum við bara keyrt á 20km/klst til að fá ekki grjót á bílinn. loksins komumst við samt heim og það var mjög gaman að hitta alla aftur. Ég reyndar hitti ekki Silfá mína.:( sem var mjög leiðinlegt, mig langaði svo að hitta hana. en ég hitti alla aðra. Svenni var að sjá flesta í fyrsta skipti. / alla fyrirutan mömmu pabba og systkini mín / og svo á fimmtudeginum komu Svenni(bróðir mömmu) og Hjördís og afi í heimsókn til okkar og böddi kom svo um nóttina. En Ég og Svenni fórum norður á föstudagsmorguninn.

ferðin norður gekk mjög vel, um páskahelgina fórum við upp í bústaðinn þeirra og inn á Dalvík í byggðasafnið og ég fór í fyrsta skiptið mitt til Ólafsfjarðar.:) Þetta var mjög gaman skom.;)

svo er skólinn byrjaður aftur á fullu og bara 13.kennsludagar eftir.;) og svo próf. ég er ekki búin i prófunum fyrr en 18.maí.þá er síðasta prófið.:S jæja,

Nohh svo á hún elsku litla systur mín afmæli á morgun og verður hún 15.ára :D og þá um kvöldið er söngkeppni framhaldskólanna haldin á Akureyri, og auðvitað mæti ég á staðinn, Ég splæsti á okkur skötuhjú tveimur miðum ;) Allir í VMA eru handvissir um að okkar skóli vinni.:P svo er auðvitað ball á eftir : Dj Páll Óskar og Buff..

jæja, ég ætla að hætta þess núna, held það sé komið nóg.;)

ps. Það er grenjandi rigning, hef ekki séð svona mikla rigningu í langan tíma.:S 

kveðjur að norðan

-Ragnheiður Sjöfn


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 13:02:45 / Ragnheiðurs

Til hamingju með daginn pabbi;*

Til hamingju með 50.árin pabbi minn.;*

Jæja, bara vika í að við förum suður á tónleikana og hitta fjölskylduna mína.  Það er mjög lítið að segja ég á 8.fiska núna.:D

5 neon fiska ( voru 6. dó einn í gær :( )  2 gúbbí-fiska. Karlkyns og kvenkyns. hún heitir Rósa.:D  og svo einn hákarla-fisk. Ég er mjög ánægð með þá.:P mjög fjörugir og skemmtilegir fiskar allir.;)  Karl gúbbífiskurinn er mjög fallegur á litinn.  erum ennþá að hugsa nöfn á karl gúbbíinn og hákarlinn. 

Er að hugsa um að gera dagamun og skella mér í ræktina eftir skóla.;) og vera dugleg að hreyfa mig.:D

 

já, Svandís einnig til hamingju með 17.ára afmælið í dag.

 

hef ekkert meira merkilegt að segja

þangað til næst;)

-Ragnheiður Sjöfn 


» 8 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 20:14:28 / Ragnheiðurs

Góðan daginn og gakk í bæinn

Ég vil tileinka þetta blogg henni mömmu minni. Þar sem hún er búin að vera að biðja mig um að blogga alla vikuna. :D

jæja, Ég fékk 9,3 í LoL prófinu,( sem er fyrrihluti lokaprófsins)  sem er bar helv*** gott.:D Svo sótti ég um vinnu í dag á Litlu kaffistofunni ( á akureyri ) fæ ekki svar fyrr en einhverntíman eftir páska.

Jæja Svo verður pabbi gamli bara fimmtugur eftir viku.:D og eftir 2 vikur förum við Svenni suður að hitta fjölskylduna mína og fara á tónleika með þeim í tilefni afmælis pabba. Það verður frábært að hitta þau aftur.:D svo förum við upp í bústað að slaka á.mm get ekki beðið eftir að komast þangað og í pottinn.:P Svo skellum við okkur vestur í nokkra daga. :D Frábært frí.:D

jæja ég ætti kannski að fara að lesa pínu í enskubókinni sem ég á að vera að lesa og á að vera búin með hana og svara spurningum og tilbúin að skila þeim á mánudaginn.. Það er engin enska í þessari viku þar sem kennarinn er úti í þýskalandi með skólanum.

jæja, hafið það gott það sem eftir er af vikunni.;)

jæja, mamma þú hlítur að vera ánægð núna. loksins komið blogg.;)

Sjáumst fljótlega.;)

-Ragnheiður Sjöfn 


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 11:40:18 / Ragnheiðurs

Nýr dagur.

Góðan daginn

Ég er búin að fá út úr miðannarmatinu. fékk A í öllu nema sálfræði þar fékk ég B. ég er með 100% mætingu í öllum fögum nema stærðfræði. Er með 1 fjarvistarstig þar. Sem er fáránlegt þar sem hún var búin að gefa mér leyfi til að mæta ekki í tímann. Fáránlegt.!

Svo fékk Svenni bílinn á mánudaginn. Mikill munur að vera á Hondu en Feroza skal ég segja ykkur. :D

 Þegar við erum búin í skólanum ætlum við að fara í dýrabúðina tala við kallinn og fá okkur fisk.:D jeii..:D Vonum bara að hann lifi í þetta skiptið. 

Kveðja úr góða veðrinu að norðan. 8,5°C:P

-Ragnheiður Sjöfn 


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 16:59:37 / Ragnheiðurs

..

Góðan daginn

Þetta er bara búin að vera ágæt helgi, fyrir utan það að Svenni fór suður og fiskurinn dó. Ég er bara búin að vera að læra alla helgina. Er að lesa í Sálfræði núna fyrir próf sem ég er að fara í á morgun.

Ég byrjaði á því að vakna klukkan 12 í dag og fór þá á fætur og fékk mér að borða og fór með Kristínu í Bónus að versla. Svo þegar við komum heim fór égað taka til inní herbergi og setti í þvottavél og braut saman föt og raðaði í spápinn og svona. Fór í sturtu og svo var klukkan orðin 3 og þá var kominn kaffitími, Kristín var búin að vera að baka á meðan ég tók til og í sturtu, þannig maður fékk þessar dýrndis súkkulaðismákökur í kaffinu. :D

síðan er ég bara búin að vera aðeins í tölvunni og Lesa fyrir Sálfærðipróf. Þegar ég er búin að því fer ég og les í Dönskubókinni. jeii..

Jæja Svenni er lagður af stað Norður. Loksins! Þeir eru búnir að keppa þrjá leiki yfir helgina. á Föstudaginn kepptu þeir við Fjölnir og unnu þá með 9 marka mun. Í gær kepptu þeir við Fram og töpuðu með 1-2 mörkum í restina. Svo í dag töpuðu þeir á móti Aftureldingu, veit ekki með hvað mörgum stigum.

jæja. hef ekkert meira að segja.

 

En að lokum vil ég óska henni Viktoríu sætu minni til Hamingju með afmælið í dag. Bara orðin 15 ára gella.;) Til hamingju elskan;** 

-RagnheiðurSjöfn

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 16:23:52 / Ragnheiðurs

Ekki gott, ekki gott...

Ömurlegur dagur eitthvað í dag.

Fyrst fékk ég 5,5 út úr dönskuprófi.

Svo fór Svenni suður yfir helgina,

og svo þurfti fiskurinn ( sem við keyptum 28.feb.) endilega að deyja frá okkur.

Það var ekki mjög gaman að horfa á greyið deyja.:(

Ég sakna þeirra beggja mjög mikið.:'(

Vonandi fáum við okkur annan eftir helgi.:)

Hellingur að læra. Þannig ég verð lærandi alla helgina.

Svenni er búinn að Selja Ferozuna sína.

Lögga keypti hann.

Hann er búinn að kaupa sér nýjan bíl. Honda civic '98 4.dyra. (kóngablá)

Mjög flottur.

Jæja þá held ég að það sé ekkert meira í dag.

-RagnheiðurSjöfn 

 

  


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 20:06:26 / Ragnheiðurs

Nýr fjölskyldumeðlimur.:D

Góða kvöldið

Það er bara allt að gerast þessa dagana Miðannarprófin hvert á fætur öðru og skilaverkefni og allskonar kaflapróf. Og í gær átti Svenni minn 17 ára afmæli og fékk bílprófið og alles..:P Og við erum búin að vera rúntandi á Feroza síðan í gær. Geðveikt svöl áþví. Það er líka bæði horft og hlegið að okkur..:P hehe.

við vorum fyrir utan 10:11 í gærkvöldi og ég sá þá skilti frá gæludýrabúðinni og ég var ekki búin að gefa Svenna neitt í afmælisgjöf. og ég spurði hann hvort ég mætti ekki bara gefa honum fisk. og mér til mikillar undrunar sagði hann Já. ( hef spurt hann áður og hann afþakkað.) og ég alveg geðveikt glöð. Gat ekki beðið eftir deginum i dag til að fara a velja fisk.:P

í dag fórum við í Blómaval að skoða fiska, þar voru margir voðalega fallegir og okkur langaði í marga. Við spurðum einhvern kall þarna hvað svona nemo-fiskur kostaði og maðurinn sagði 8000kr. krónur og ég missti andlitið, og venjulegur gullfiskur kostar ekki nema 550kr.

þannig við fórum bara og athuguðum hvernig fiska þeir væru með í dýrabúðinni og eftir mikla leit þá fundum við einn lítinn sætann nemo-fisk. og hann kostaði ekki nema 2þúsund og eitthvað. sem var frábært.:D

Svenni átti fiskabúr og mat og allt í fiskabúrið og það vantaði bara fiskinn. sem ég og keypti og gaf honum:D við ætlum að sjá hvernig þetta fúnkerar og fá okkur svo kannski fleiri fiska seinna:D

gaman af því.

ég hef ekkert meira að segja í dag.:P

-RagnheiðurSjöfn




» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734542 dögum
�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1606 dögum
Myndasöfn
Klukkan